Vindrof |
Vindrof myndast þegar vindur flytur veðrað efni. Vindrof hefur mikið áhrif þar sem land er lítið eða varla gróið og skortir raka til að binda jarðveginn. Þá getur vindurinn lyft lausum og léttum jarðvegskornum og borið þau í burtu. Áhrif vindrofs geta einnig verið mikil á stórum landbúnaðarsvæðum þar sem er mikið ræktað. Vindar geta borið mikið magn af mold burtu af ökrunum .